Gulur bíll ehf er fyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir á sviði umferðarflæði. Fyrirtækið býður upp á ráðgjöf á sviði bílastæðalausna, skipulags umferðar og deilihagkerfa. Einnig selur fyrirtækið búnað og hugbúnað vegna ofangreindra atriða.

Guðmundur Arason

Guðmundur Arason ga@gulur.is  Frá árinu 1992 hefur Guðmundur sinnt stjórnunarstöðum í þjónustugeiranum á Íslandi. Hann var meðal eigenda að Securitas hf frá aldamótum til 2017. Guðmundur hefur verið viðriðinn þróun og rekstur fasteigna á Íslandi og erlendis síðustu árin. 
Brynjar Harðarson BRYNJAR HARÐARSON bh@gulur.is Frá árinu 1990 hefur Brynjar komið að mörgum fasteignaþróunarverkefnum á Íslandi og hefur hann stýrt tveimur veigamiklum verkefnum frá skipulagsstigi og til uppbyggingar. Þessi verkefni eru: Akralandið í Garðabæ og Hliðarendareiturinn í Reykjavík. Í þessum verkefnum hefur skipulag umferðar verið veigamikill þáttur í heildar upplifun borgaranna. Brynjar hefur síðustu ár aflað sér aukinnar þekkingar á sviði flæðis umferðar.

Auk þess að njóta starfa þessara starfsmanna höfum við fjölda verktaka og ráðgjafa sem sinna daglegum þjónustustörfum, hönnun og uppsetningu búnaðar. 

Gulur bíll er umboðsaðili fyrir Autopay a/s sem hannar og framleiðir gjaldskyldukerfi fyrir bílastæði. Megin viðskiptasíða okkar er á www.autopay.io

 

Gulur bíll ehf.

Kennitala: 581215-0370 VSK-númer: 138961
Sporðagrunni 19
104 Reykjavík
Sími: 511 5116
Netfang: gulur@gulur.is